Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 406. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 737  —  406. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um uppsagnir starfsmanna ráðuneytisins og starfslið ráðherra.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.

     1.      Hve mörgum starfsmönnum ráðuneytisins hefur verið, eða verður, sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir skrifstofum ráðuneytisins og starfsheitum og að greint sé frá í hve miklum mæli um uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls er að ræða.
     2.      Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hefur ráðherra ráðið frá stjórnarskiptum?


Skriflegt svar óskast.