Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 408. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 739  —  408. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um uppsagnir starfsmanna
velferðarráðuneytisins og starfslið ráðherra.


Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hve mörgum starfsmönnum velferðarráðuneytisins hefur verið eða verður sagt upp störfum vegna sérstakrar 5% niðurskurðarkröfu sem lögð var á aðalskrifstofur ráðuneyta í fjárlögum? Svarið óskast sundurliðað eftir skrifstofum ráðuneytisins og starfsheitum og greint skal frá því í hve miklum mæli er um uppsagnir eða lækkun starfshlutfalls að ræða.
     2.      Hve marga aðstoðarmenn, ráðgjafa eða starfsmenn í sérverkefni í fullu starfi eða hlutastarfi eða sem verktaka hafa ráðherrar í velferðarráðuneytinu ráðið frá stjórnarskiptum?


Skriflegt svar óskast.