Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 412. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 743  —  412. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um sóknaráætlun landshluta.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


     1.      Hefur þeim fjármunum sem eru ætlaðir til sóknaráætlunar landshluta verið úthlutað?
     2.      Eftir hvaða reiknireglum fer úthlutunin?
     3.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér áframhald sóknaráætlunar landshluta og aðkomu sveitarfélaga og landshluta að fjárlagagerð og forgangsröðun verkefnisins?


Skriflegt svar óskast.