Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 421. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 760  —  421. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um húsnæðismál Listaháskóla Íslands.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


    Hver er framtíðarsýn ráðherra hvað varðar húsnæðismál Listaháskóla Íslands? Liggja fyrir niðurstöður úr starfshópi ráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Listaháskólans sem átti að fjalla um framtíðarstaðsetningu skólans?