Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 762  —  423. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um úttekt á netöryggi almennings.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hverjar voru helstu niðurstöður úttektar á netöryggi almennings sem boðuð var af hálfu ráðuneytisins í kjölfar tölvuinnbrots hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone laugardaginn 30. nóvember 2013? Sundurliðað svar óskast um stöðu netöryggis, ábyrgð fjarskiptafyrirtækja, eftirlit opinberra stofnana, gæði lagarammans og réttarstöðu neytenda.
     2.      Hefur verið gripið til einhverra ráðstafana í kjölfar úttektarinnar?
     3.      Hvenær og á hvaða vettvangi verða niðurstöður úttektarinnar gerðar opinberar?


Skriflegt svar óskast.