Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 313. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 769  —  313. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um Hornafjarðarhöfn.


     1.      Hvernig miðar öldufarsrannsóknum við Breiðamerkurlón og Hornafjarðarós?
    Unnið er að öldufars- og sandburðarrannsóknum við Hornafjarðarós. Þessar rannsóknir miða að því að skýra öldufar og sandflutninga um Grynnslin framan við Ósinn. Samhliða þessum rannsóknum er verið að skoða sjávardýpi á Grynnslunum og breytingar á sjávarföllum innan við Ósinn, en hvoru tveggja verður fyrir áhrifum af landrisi.
    Talið er að sjávarföll og straumar um Ósinn hafi breyst eftir byggingu leiðigarða í Ósnum. Þá eru siglingar djúpristra fiskiskipa yfir Grynnslin skráð og kannað við hvaða aðstæður þau taka niðri. Þessar athuganir eru grundvöllur þess að skoða hvort og þá með hvaða hætti er hægt að bæta innsiglinguna yfir Grynnslin til Hornafjarðarhafnar. Stefnt er að því að ljúka við áfangaskýrslu í sumar. Ákveðið verður í framhaldi af henni með næstu skref.
    Engar öldufarsrannsóknir eru í gangi við Breiðamerkurlón. Síðustu ár hefur ástandið þar verið nokkuð stöðugt en full ástæða er til að fylgjast með aðstæðum, svo sem með reglulegum dýptarmælingum.
    Vegagerðin metur það svo að vissulega sé ástæða til að útvíkka öldufars- og sandburðarrannsóknir við Hornafjarðarós þannig að þær nái einnig til svæðisins við Breiðamerkurlón og miðar að því að gera tillögu um að það verkefni fari inn á samgönguáætlun fyrir árin 2015–2018, en vinna við þá samgönguáætlun hefst í haust.

     2.      Stendur til að fara í aðgerðir til að bæta innsiglinguna í Hornafjarðarhöfn og ef svo er, hvernig er tímaáætlun þeirra framkvæmda?

    Á meðan að rannsóknunum er ólokið er ekki tímabært að fara í aðgerðir til að bæta innsiglinguna. Ljóst er að slíkar aðgerðir yrðu mjög kostnaðarsamar, bæði fælu þær í sér stóra og mikla leiðigarða þar sem tekist yrði á við töluvert meiri krafta en núverandi mannvirki í Ósnum gera og auk þess mætti búast við töluverðum viðhaldsdýpkunum.
    Þá liggur enn ekkert fyrir um árangurinn af slíkum framkvæmdum en rétt er að kanna það nánar þegar fyrrnefndri rannsókn, sem fjallað er um í 1. tölul. fyrirspurnarinnar, er lokið og niðurstöður hennar liggja fyrir.