Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 431. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 773  —  431. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um aðlögun að Evrópusambandinu.

Frá Guðbjarti Hannessyni.


     1.      Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðuneytisins eða á stofnunum þess frá 2009 má rekja til aðlögunar að Evrópusambandinu?
     2.      Hvaða breytingar voru eingöngu vegna aðildarumsóknar og viðræðna við ESB?
     3.      Hvaða breytingar urðu á sama tíma fyrst og fremst vegna aðildar Íslands að EES?


Skriflegt svar óskast.