Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 434. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 776  —  434. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um aðlögun að Evrópusambandinu.

Frá Guðbjarti Hannessyni.


     1.      Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðherra eða á stofnunum sem heyra undir hann frá 2009 má rekja til aðlögunar að Evrópusambandinu?
     2.      Hvaða breytingar voru eingöngu vegna aðildarumsóknar og viðræðna við ESB?
     3.      Hvaða breytingar urðu á sama tíma fyrst og fremst vegna aðildar Íslands að EES?


Skriflegt svar óskast.