Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 437. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 779  —  437. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um samkeppnishindranir í fiskvinnslu.

Frá Helga Hjörvar.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við tilmælum Samkeppniseftirlitsins um að koma í veg fyrir samkeppnishindranir sem tengist því að útgerðarfyrirtæki, sem stunda bæði veiðar og vinnslu, gefa upp sem lægst verð í innri viðskiptum milli vinnslu- og útgerðarhluta?
     2.      Hverja þeirra fjögurra leiða sem Samkeppniseftirlitið bendir á til að draga úr þessum samkeppnishindrunum telur ráðherra koma til greina, þ.e.:
                  a.      að beita sérstökum milliverðlagningarreglum,
                  b.      að hafnir miði gjaldtöku við það umstang sem fylgir því að þjónusta viðkomandi skip,
                  c.      að gera breytingar á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs sem komi í veg fyrir að keppinautar ræði um og ákveði verð sem notast er við í innri viðskiptum útgerða,
                  d.      að efla starfsemi Verðlagsstofu skiptaverðs og gefa henni heimildir til að ákvarða viðmiðunarverð í beinum viðskiptum með fisk?
     3.      Telur ráðherra hægt að bæta með öðru móti samkeppnisstöðu fiskvinnslufyrirtækja sem ekki stunda veiðar?