Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 355. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 790  —  355. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur um rammasamninga Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara.


     1.      Hver er árlegur kostnaður vegna nýrra rammasamninga Sjúkratrygginga Íslands við:
              a.      sérgreinalækna,
              b.      sjúkraþjálfara?
    Í tæplega þrjú ár, frá 1. apríl 2011 til 31. desember 2013, var ekki samningur um þjónustu sérgreinalækna. Á þessu tímabili var verðlagning þjónustunnar frjáls og læknarnir hófu að innheimta sérstakt komugjald af sjúklingum til viðbótar gjaldi samkvæmt eldri samningi sem endurgreiðslur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) tóku mið af. Sjúklingar greiddu sérstaka komugjaldið að fullu. Það taldi ekki upp í afsláttarkort enda utan greiðsluþátttöku ríkisins. Áætlað er að heildarkostnaður sjúklinga vegna sérstaka komugjaldsins hafi numið um 1 milljarði kr. á árinu 2013. Með nýjum samningi féll sérstaka komugjaldið niður og einingarverð fyrir þjónustu sérgreinalækna var hækkað með hliðsjón af þróun launa og verðlags. Á árinu 2014 er áætlað að heildarkostnaður vegna rammasamnings SÍ við sérgreinalækna, sem tók gildi 1. janúar 2014, verði um 6.400 millj. kr.
    Á ársgrundvelli er áætlað að heildarkostnaður vegna rammasamnings SÍ við sjúkraþjálfara, sem tók gildi 14. febrúar 2014, verði um 3.200 millj. kr.

     2.      Hvernig skiptist sá kostnaður milli sjúklinga og Sjúkratrygginga Íslands?
    Vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna er áætlað að hlutdeild sjúklinga í heildarkostnaðinum hafi verið að jafnaði um 43% og hlutdeild SÍ 57% árið 2013. Árið 2008 var hlutur sjúklinga í heildarkostnaði við þjónustu sérgreinalækna um 28% að jafnaði.
    Enn er til skoðunar hvernig aukinn kostnaður vegna samnings við sérgreinalækna skiptist milli sjúklinga og Sjúkratrygginga Íslands, en miðað við óbreytta reglugerð nr. 1182/2013 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við heilbrigðisþjónustu er áætlað að hlutdeild sjúklinga í heildarkostnaðinum sé í kringum 32% að jafnaði og hlutdeild SÍ 68%.
    Vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara er áætlað að hlutdeild sjúklinga í heildarkostnaðinum hafi að jafnaði verið kringum 40% og hlutdeild SÍ 60% árið 2013. Eftir gerð nýs samnings við sjúkraþjálfara og breytingar á reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun, sbr. reglugerð nr. 1189/2013 og reglugerð nr. 116/2014, er áætlað að hlutdeild sjúklinga sé að jafnaði nálægt 48% og hlutdeild SÍ 52% á ársgrundvelli.

     3.      Hvernig er ætlunin að fjármagna samningana?

    Samningarnir við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara eru fjármagnaðir með tvennum hætti, greiðslu Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt samningnum og hlutdeild sjúklinga í umsömdu heildarverði þjónustunnar samkvæmt gildandi reglugerð hverju sinni.