Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 794  —  448. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um einkavæðingu ríkiseigna.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Hver er stefna forsætisráðherra hvað varðar einkavæðingu ríkiseigna? Kemur til greina að selja einhver fyrirtæki eða aðrar eignir ríkisins á kjörtímabilinu og þá hvaða?
     2.      Kemur til greina að einkavæða einhverja starfsemi á vegum ríkisins á kjörtímabilinu með því að fela einkaaðilum að annast hana á grundvelli samninga og þá hvaða?