Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 479. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 829  —  479. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum.

Frá Haraldi Benediktssyni.


     1.      Er hafin endurskoðun reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum?
     2.      Er fyrirhugað eða hafið endurmat á þörf fyrir þjónustu á einstökum svæðum, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar?
     3.      Hvernig er áformað að staðið verði að endurskoðun og mati á reynslu núgildandi fyrirkomulags?
     4.      Mun ráðuneytið kalla eftir samstarfi við bændur um slíka endurskoðun?