Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 491. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 851  —  491. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um aðgang að sjúkraskrám.



Frá Björt Ólafsdóttur.



     1.      Hversu oft á síðustu fimm árum hefur beiðni um aðgang að sjúkraskrá verið synjað af umsjónaraðila sjúkraskrár?
     2.      Hversu oft hafa ákvarðanir umsjónaraðila um aðgang að sjúkraskrá verið kærðar til landlæknis og hver var niðurstaða þeirra mála?
     3.      Hversu oft hafa ákvarðanir landlæknis um aðgang að sjúkraskrá verið kærðar til ráðuneytisins og hver var niðurstaða þeirra mála?
    Svör óskast sundurliðuð eftir því hvort beðið var um aðgang að eigin sjúkraskrá eða sjúkraskrá náins aðstandanda.


Skriflegt svar óskast.