Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 493. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 853  —  493. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um ráðstöfun fjár
sem rann til menningarsamninga landshluta.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Í hvaða verkefni verða þeir fjármunir nýttir sem áður voru framlag ráðuneytisins til menningarsamninga landshlutanna og hvaða reglum verður beitt við úthlutun fjárins?
     2.      Hvaða rökstuðningur liggur að baki þeirri ákvörðun að fella niður fjárframlag ráðuneytisins til menningarsamninganna?


Skriflegt svar óskast.