Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 545. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 936 — 545. mál.
1. Hvernig kom ríkisvaldið að skipulegri fækkun sláturhúsa fyrir sauðfé úr 27 í 8 á síðasta aldarfjórðungi?
2. Telur ráðherra að fækkunin hafi leitt til aukinnar hagkvæmni í greininni? Er hann t.d. þeirrar skoðunar að hún hafi gert kleift að auka fjárfestingu í búnaði sem skilaði aukinni nýtingu og þar með hærra skilaverði?
3. Var fækkunin forsenda þess að hægt var að auka fullvinnslu fyrir sérhæfða markaði og þróa ýmsar hliðarafurðir sem áður nýttust miður?
4. Má ætla að skilaverð til sauðfjárbænda hafi hækkað vegna framangreindrar hagræðingar? Ef svo er, má áætla gróflega hversu mikið hlutfallslega?
Skriflegt svar óskast.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 936 — 545. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um fækkun sauðfjársláturhúsa.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.