Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 553. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 951  —  553. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um menntun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvaða fræðilegur grunnur er undir menntun áfengis- og vímuvarnaráðgjafa, sbr. 3. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012?
     2.      Við hvaða menntastofnun hafði ráðherra samráð þegar sett var reglugerð nr. 1106/2012, um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 34/2012 þar sem fram kemur að ráðherra skuli hafa samráð við landlækni, viðkomandi fagfélag og menntastofnun hér á landi við setningu slíkrar reglugerðar?
     3.      Hvaða menntastofnun ber ábyrgð á kennslu skv. 2. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1106/2012?
     4.      Á hvaða heilbrigðisstofnunum fer starfsnám skv. 1. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar fram?
     5.      Er fjöldi kennslustunda skv. 2. og 3. tölul. 4. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar sambærilegur við fjölda kennslustunda í námi annarra heilbrigðisstétta skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 34/2012?


Skriflegt svar óskast.