Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 570. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 994  —  570. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um bílaleigur.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


     1.      Hvaða ívilnanir standa bílaleigum til boða og hver hefur þróun þeirra verið síðustu tíu ár á verðlagi ársins 2013, þ.e. aðflutningsgjöld, skattaívilnanir, afsláttur á vörugjöldum og aðrar ívilnanir?
     2.      Hver hefur fjöldi bílaleiga verið árlega síðustu tíu ár og hvernig hefur framboð bílaleigubíla verið?
     3.      Hverjar hafa verið tekjur ríkissjóðs af bílaleigum árlega síðustu tíu ár á verðlagi ársins 2013, sundurliðaðar eftir helstu tekjuflokkum?


Skriflegt svar óskast.