Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 579. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1024  —  579. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um upplýsingagjöf til Alþingis
samkvæmt þingsályktun nr. 23/138.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


    Hvenær hyggst ráðherra upplýsa Alþingi um framfylgd verkefna innan Stjórnarráðsins samkvæmt ályktun Alþingis nr. 23/138, um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis, eins og ráðherra er falið að gera skv. 5. mgr. ályktunarinnar?


Skriflegt svar óskast.