Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 548. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1027  —  548. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur
um skýrslu um áhættumat vegna innflutnings búfjár.


    Svar þetta er unnið í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

     1.      Hver lét skrifa skýrslu um áhættumat vegna innflutnings búfjár, sem Preben Willeberg er höfundur að samkvæmt skýrslu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands um aðildarviðræður við Evrópusambandið, og fyrir hvern er skýrslan unnin?
    Ráðning dr. Preben W. Willebergs, sbr. starfssamning utanríkisráðuneytisins við Willeberg, dags. 17. febrúar 2012, til gerðar áhættumats varðandi innflutning lifandi dýra til Íslands fór fram í samstarfi utanríkisráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis.
    Áhættumatið var unnið í samstarfi við innlenda sérfræðinga á sviði dýrasjúkdóma og gert í þeim tilgangi að renna frekari vísindalegum stoðum undir samningskröfu Íslands í aðildarviðræðunum við ESB um áframhaldandi bann við innflutningi lifandi dýra. Var áhættumatið ítrekað rætt á fundum utanríkismálanefndar vegna meðferðar á samningsafstöðu Íslands í 12. kafla viðræðnanna.

     2.      Hvað kostaði skýrslan um áhættumat vegna innflutnings búfjár og hvað heitir hún?
    Kostnaður vegna áhættumatsins sem Willeberg hafði umsjón með var 8.051.680 kr.
    Áhættumatið heitir: Risk assessments regarding open trade in live animals to Iceland.

     3.      Hvenær var hún tilbúin af hálfu Willebergs?
    Áhættumatinu af hálfu Willebergs var lokið í mars 2013. Í framhaldinu var framkvæmt á því svokallað jafningjamat og var áhættumatið afhent stjórnvöldum í ágúst 2013.

     4.      Af hverju hefur hún ekki verið formlega birt svo nýta megi hana sem innlegg í umræðu um þessi mál?
    Áhættumatið var gert í þeim tilgangi að renna stoðum undir samningskröfu Íslands í aðildarviðræðunum við ESB svo sem að framan greinir. Svo sem kunnugt er var hlé gert á viðræðunum í maí 2013 sem m.a. felur í sér að gögn unnin í tengslum við viðræðurnar hafa ekki verið birt síðan þá. Telja verður að birting á því skjali sem hér um ræðir kunni að skaða hagsmuni Íslands komi til þess að aðildarviðræður hefjist á nýjan leik. Í þessu sambandi er höfð hliðsjón af 2. tölul. 10. gr. upplýsingalaga.

     5.      Af hverju er vitnað í þessa skýrslu Willebergs í skýrslu Alþjóðamálastofnunar eins og efni hennar ætti að vera öllum kunnugt og/eða aðgengilegt?
    Það er fulltrúa Alþjóðamálastofnunar að svara til um fyrir skýrsluna en þó verður ekki hjá því komist að benda á að áhættumatið var á almannavitorði veturinn 2012–2013 enda þónokkuð um málið fjallað í fjölmiðlum.