Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 308. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1035  —  308. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um flugfargjöld innan lands.


     1.      Hvert er hlutfall opinberra gjalda af verði flugmiða innan lands?
    Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um heildarhlutfall opinberra gjalda af verði flugmiða í innanlandsflugi, þar sem verð á flugmiðum er breytilegt á meðan ríkið innheimtir þjónustugjöld í föstum krónutölum. Hins vegar er á vegum ráðuneytisins starfshópur að hefja störf sem mun m.a. kalla eftir upplýsingum um stöðu virðisaukaskattgreiðslna flugfélaga á innanlandsmarkaði og um opinber gjöld á flugvélaeldsneyti. Þess má vænta að starfshópurinn skili niðurstöðu sinni til ráðherra í haust.
    Samkvæmt þeim upplýsingum sem þó liggja fyrir er áætlað að sértæk skattheimta af innanlandsflugi, þ.e. innheimt þjónustu- og notendagjöld, sé allt frá 6–20% af verði flugmiða almennt. Inn í það hlutfall á eftir að reikna aðra skatta og gjöld sem fyrirtæki í innanlandsflugi greiða, svo sem skatta af eldsneyti, launatengd gjöld o.fl.

     2.      Hefur ráðherra skoðað að grípa til aðgerða til að lækka megi flugfargjöld innan lands og ef svo er, hvenær má vænta niðurstöðu þeirrar skoðunar?

    Ráðherra hefur ítrekað, bæði í ræðu og riti, lýst þeirri skoðun að lækka þurfi opinber gjöld, í hvers formi sem þau eru, á innanlandsflug almenningi til hagsbóta. Á vegum ráðuneytisins er starfshópur að hefja störf sem mun m.a. kalla eftir upplýsingum um stöðu virðisaukaskattgreiðslna flugfélaga á innanlandsmarkaði og um opinber gjöld á flugvélaeldsneyti. Þess má vænta að starfshópurinn skili niðurstöðu sinni til ráðherra í haust og í framhaldinu verður, í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið, greint hvernig hið opinbera getur komið að því að lækka flugfargjöld innan lands.
    Ljóst er að innanlandsflugi hér á landi stendur ógn af þeim hækkunum sem listaðar eru upp hér að framan. Í því samhengi er rétt að vísa í bókun flugráðs frá 5. desember 2012 þar sem segir:
    „Sívaxandi hækkanir á opinberum gjöldum á innanlandsflugið eru komnar yfir þolmörk og munu óhjákvæmilega bitna á farþegum í hækkun fargjalda og samdrætti í þjónustu. Varað er við, að sjálfbærni í flugrekstri innanlands sé ógnað og samkeppnisskilyrði verulega veikt með óhóflegri gjaldtöku. Innanlandsflug er mikilvægur hluti almenningssamgangna sem gerir fólki m.a. kleift að komast með hraði á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar og að sinna erindum á einum og sama deginum. Efnahagshrun í landinu má ekki leiða til þess að rekstrarumhverfi innanlandsflugs verði varanlega skekkt sem getur síðar leitt til beinna opinberra útgjalda til þess að tryggja eðlilega þjónustu við búsetu fólksins í landinu.“