Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 432. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1039  —  432. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Guðbjarti Hannessyni
um aðlögun að Evrópusambandinu.


     1.      Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðuneytisins eða á stofnunum þess frá 2009 má rekja til aðlögunar að Evrópusambandinu?
    Engar breytingar á lögum voru gerðar sérstaklega vegna aðlögunar að Evrópusambandinu. Hins vegar hafa starfsmenn ráðuneytisins farið í umtalsverða vinnu við að greina löggjöf Evrópusambandsins í kjölfar aðildarumsóknar Íslands að sambandinu sumarið 2009.

     2.      Hvaða breytingar voru eingöngu vegna aðildarumsóknar og viðræðna við ESB?
    Engar breytingar urðu á lögum vegna aðildarumsóknar og viðræðna við ESB.

     3.      Hvaða breytingar urðu á sama tíma fyrst og fremst vegna aðildar Íslands að EES?
Innanríkisráðuneyti:
     –      Lög nr. 3/2014, um breytingu á lögum um skaðsemisábyrgð, nr. 25 27. mars 1991 (ábyrgð dreifingaraðila).
     –      Lög nr. 120/2013, um skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum o.fl.
     –      Lög nr. 85/2013, um breytingu á lögum um neytendalán (frestun gildistöku).
     –      Lög nr. 33/2013, um neytendalán.
     –      Lög nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa.
     –      Lög nr. 153/2012, um breytingu á lögum um vegabréf, nr. 136/1998, með síðari breytingum (gildistími almenns vegabréfs).
     –      Lög nr. 152/2012, um breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987 (fullnaðarskírteini).
     –      Lög nr. 50/2012, um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum (flugvirkt, flugvernd, neytendavernd, EES-skuldbindingar, loftferðasamningar o.fl.).
     –      Lög nr. 46/2012, um breytingu á siglingalögum, nr. 34/1985 (um tryggingar skipaeigenda gegn sjóréttarkröfum).
     –      Lög nr. 163/2011, um breytingu á lögum nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum.
     –      Lög nr. 34/2011, um breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum (fjarskiptaáætlun, stjórnun og úthlutun tíðna o.fl.).
     –      Lög nr. 7/2011, um Lúganósamninginn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti:
     –      Lög nr. 115/2010, um breyting á lögum nr. 96/2002, um útlendinga, með síðari breytingum (hælismál).
     –      Lög nr. 114/2010, um breyting á lögum um útlendinga, nr. 96 15. maí 2002, með síðari breytingum (Schengen, framfærsla o.fl.).
     –      Lög nr. 61/2010, um breytingu á lögum nr. 38/2005, um happdrætti.
     –      Lög nr. 12/2010, um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða (norræn handtökuskipun).

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti:
     –      Lög nr. 146/2010, um breytingu á lögum nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum.
     –      Lög nr. 87/2010, um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum.
     –      Lög nr. 145/2009, um breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum.

Samgönguráðuneyti:
     –      Lög nr. 15/2009, um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum.