Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 471. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1043 — 471. mál.
1. Hversu margar bifreiðar fara um Hvalfjarðargöng á ári hverju?
Árið 2013 fóru 1.887.343 bílar um Hvalfjarðargöng eða að meðaltali 5.171 á degi hverjum (ÁDU=5.171 b/d). Mest var umferðin árið 2007, en það ár fóru rúmlega tvær milljónir ökutækja um göngin. Árin þar á milli var umferð bifreiða um göngin með þessum hætti:
2. Eru upplýsingar tiltækar um búsetu ökumanna sem keyra um göngin? Ef svo er, hvernig skiptast þeir eftir búsetusvæðum?
Árið 2002 gerði Vegagerðin könnun á umferðinni um göngin. Samkvæmt niðurstöðum þeirrar könnunar voru um 41% vegfarenda af Vesturlandi, sem skiptist þannig að 22% voru af Akranessvæðinu, 13% af Borgarnessvæðinu og 5% af Snæfellsnessvæðinu. Um 42% vegfarenda voru af höfuðborgarsvæðinu en þau 17% sem þá eftir voru frá öðrum landshlutum.
Vegagerðin hefur ekki nýrri upplýsingar um skiptingu vegfarenda eftir landshlutum.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1043 — 471. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Elsu Láru Arnardóttur um Hvalfjarðargöng.
1. Hversu margar bifreiðar fara um Hvalfjarðargöng á ári hverju?
Árið 2013 fóru 1.887.343 bílar um Hvalfjarðargöng eða að meðaltali 5.171 á degi hverjum (ÁDU=5.171 b/d). Mest var umferðin árið 2007, en það ár fóru rúmlega tvær milljónir ökutækja um göngin. Árin þar á milli var umferð bifreiða um göngin með þessum hætti:
| ÁDU | Alls | |
| 2007 | 5.579 | 2.036.335 |
| 2008 | 5.420 | 1.983.720 |
| 2009 | 5.421 | 1.978.665 |
| 2010 | 5.377 | 1.962.605 |
| 2011 | 5.070 | 1.850.550 |
| 2012 | 5.007 | 1.832.562 |
| 2013 | 5.171 | 1.887.343 |