Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 588. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1060  —  588. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um niðurrif aflagðra varnargirðinga.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hver hefur eftirlit með útboði á niðurrifi aflagðra varnargirðinga vegna sauðfjársjúkdóma?
     2.      Hver hefur eftirlit með að sá sem hefur best í útboði sinni verkefninu?
     3.      Hve langan tíma fær viðkomandi til verksins og hvernig er hægt að taka á því ef hann sinnir því ekki?
     4.      Hve langur tími líður þar til verkið er boðið út aftur ef því er ekki sinnt?
     5.      Fær sá greitt fyrir fram sem fær verkið og ef svo er, þarf hann að endurgreiða upphæðina ef hann sinnir því ekki?


Skriflegt svar óskast.