Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 580. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1111 — 580. mál.
1. Hvenær má búast við tillögum frá nefnd sem ráðherra skipaði í ágúst 2013 um samræmt niðurgreiðslukerfi fyrir alla heilbrigðisþjónustu?
Ekki liggur fyrir tímasett áætlun um vinnu nefndarinnar eða ákvörðun um hvenær hún skilar endanlegum tillögum. Ráðherra hefur lagt áherslu á að sem víðtækust sátt náist í nefndinni um innleiðingu greiðslukerfis vegna heilbrigðisþjónustu.
2. Hyggst ráðherra setja reglur um hámarksgreiðsluþátttöku sjúklinga?
Vilji ráðherra stendur til þess að endurskoða þátttöku sjúklinga í kostnaði við heilbrigðisþjónustu þannig að hún verði sanngjarnari, gagnsærri og auðskiljanlegri fyrir fólk. Leiðarljósið er að verja einstaklinga gegn háum kostnaði. Útfærsla á því hvernig það verður gert liggur ekki fyrir en meðal annars er horft til reynslunnar af undirbúningi, innleiðingu og eftirfylgni með nýju greiðsluþátttökukerfi lyfja sem tók gildi 4. maí 2013.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1111 — 580. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um heilbrigðiskostnað og greiðsluþátttöku sjúklinga.