Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 596. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1117  —  596. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um afhendingu meðmælendalista frá framboðum.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


    Hversu margir aðilar hafa beðið um að fá afhent eintak af meðmælendalistum frá framboðum vegna a) sveitarstjórnarkosninga árið 2010, b) forsetakosninga 2012, c) alþingiskosninga 2013? Í hversu mörgum tilvikum var orðið við beiðni þeirra? Óskað er sundurliðunar eftir því hvaða stjórnvald tók ákvörðun um að afhenda gögnin, ári afhendingar og framboðum.


Skriflegt svar óskast.