Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 517. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1156  —  517. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda,
nr. 116/2012 (forstöðumaður Fjölmenningarseturs).

Frá minni hluta velferðarnefndar.


    Minni hlutinn leggst gegn efni frumvarpsins sem felur í sér óljós áform um sameiningu mikilvægra stjórnsýslustofnana. Með samþykkt frumvarpsins felst sú stefnuyfirlýsing að Fjölmenningarsetur, Jafnréttisstofa og réttindagæslumenn fatlaðs fólks skuli sameina í eina stofnun. Minni hlutinn bendir á að slík sameining hefur ekki verið rædd á Alþingi eins og nauðsynlegt er að gera og því um ótímabært frumvarp að ræða. Ljóst er að ef sameina á mikilvægar stjórnsýslustofnanir í eina þarf að liggja þeirri sameiningu til grundvallar greining á þeim kostum og göllum sem fylgja slíkri sameiningu. Slík greining liggur ekki fyrir nú þegar mál sem gefur óhjákvæmilega fyrirheit um slíka sameiningu er til afgreiðslu þingsins.
    Fjölmenningarsetur, Jafnréttisstofa og réttindagæslumenn fatlaðs fólks þjóna ólíkum hópum samfélagsins og þjónusta þeirra er afar ólík. Starfsemi Fjölmenningarseturs snýr að málefnum innflytjenda auk þjónustu við stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki og aðra varðandi ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni innflytjenda. Starfsemi Jafnréttisstofu snýr að jafnrétti kynjanna, stofnunin fer með eftirlit með framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sér um upplýsingastarfsemi og fræðslu til opinberra aðila og einkaaðila. Réttindagæslumenn fatlaðs fólks aðstoða fatlað fólk við að lifa sjálfstæðu lífi og til töku ákvarðana um eigið líf, hvaða þjónustu það eigi að fá og veita ráðgjöf. Störf þessara stofnana og réttindagæslumanna eru því afar ólík innbyrðis og umdeilanlegt er að þessar stofnanir eigi saman að því marki að hægt sé að sinna öllum málaflokkum á fullnægjandi hátt með rekstri einnar stofnunar. Minni hlutinn bendir á að fara þurfi fram heildstætt mat á því hvort rétt sé að sameina jafn ólíkar stofnanir og hér um ræðir. Óljós áform um sameiningar án heildstæðs mats á kostum og göllum er starfsemi framangreindra stofnana ekki til framdráttar og jafnframt óviðunandi að starfsemi Fjölmenningarseturs sé í jafn mikilli óvissu og frumvarpið ber með sér.
    Minni hlutinn telur um óþarft mál að ræða og leggst gegn samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 15. maí 2014.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
form.
Guðbjartur Hannesson,
frsm.
Björt Ólafsdóttir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.