Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 605. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1171  —  605. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um hjúskaparréttindi erlendra ríkisborgara og dvalarleyfi.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Hver eru hjúskaparréttindi erlendra ríkisborgara sem dvelja á Íslandi án dvalarleyfis ef makinn er íslenskur ríkisborgari og hvernig eru þau frábrugðin hjúskaparréttindum hjóna sem bæði eru íslenskir ríkisborgarar?
     2.      Telur ráðherra að ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar svokölluðu gangi framar lögvernduðum hjúskap?
     3.      Telur ráðherra að hjúskapur við íslenskan ríkisborgara búsettan á Íslandi geti fallið undir undanþáguheimild um að útlendingur sem sækir um dvalarleyfi í fyrsta skipti skuli sækja um það áður en hann kemur til landsins og sé óheimilt að koma til landsins fyrr en umsóknin hefur verið samþykkt nema ríkar sanngirnisástæður séu fyrir hendi, sbr. 10. gr. laga um útlendinga?
     4.      Hyggst ráðherra setja reglur á grundvelli 10. gr. laga um útlendinga um undanþágur frá því að útlendingi sé óheimilt að koma til landsins fyrr en hann hefur fengið dvalarleyfi?


Skriflegt svar óskast.