Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1221 — 543. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margir erfingjar eða dánarbú ábyrgðarmanna námslána greiða nú af námslánum sem fallið hafa á ábyrgðarmann?
Ráðuneytið sendi framangreinda fyrirspurn til umsagnar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Frá Lánasjóðnum fengust þau svör að fjöldi lána í innheimtu þar sem erfingjar eða dánarbú greiddu af námslánum væri um þessar mundir samtals 30. Samkvæmt upplýsingum frá Lánasjóðnum er um að ræða mál þar sem aðilar hafa gengist við ábyrgð og samið um uppgjör. Að öðru leyti heldur Lánasjóðurinn ekki upplýsingar um þau lán þar sem erfingjar eða dánarbú eru greiðendur.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1221 — 543. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um greiðslur erfingja ábyrgðarmanna af námslánum.