Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1301 — 609. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra beita áhrifum sínum til þess að Samband íslenskra sveitarfélaga semji við grunnskólakennara á sama hátt og samið var við framhaldsskólakennara svo að forðast megi röskun á skólastarfi á næstunni?
Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrirspurnin barst ráðuneytinu 19. maí en 20. maí skrifuðu þar til bærir samningsaðilar undir nýjan kjarasamning.
Ráðherra hafði ekki frumkvæði að því að hafa áhrif á kjaraviðræður grunnskólakennara, enda bera sveitarfélög ábyrgð á rekstri grunnskóla og kostnaði við þá samkvæmt lögum um grunnskóla, nr. 91/2008.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1301 — 609. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Ólöfu Pálínu Úlfarsdóttur
um samninga við grunnskólakennara.