Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 531. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1302  —  531. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Vilhjálmi Bjarnasyni
um framkvæmd á úrskurðum kjararáðs vegna laga nr. 87/2009.


     1.      Hver var framkvæmd á úrskurðum kjararáðs dagsettum 23. febrúar 2010 vegna laga nr. 87/2009, um breytingu á lögum um kjararáð og fleiri lögum, varðandi laun og önnur starfskjör forstjóra Matís ohf. (sjá kjararáð 2010.4.001 og kjararáð 2010.4.012)?
    Laun þáverandi forstjóra Matís ohf. voru lækkuð frá og með 1. desember 2010, að loknum uppsagnarfresti samkvæmt ráðningarsamningi.

     2.      Fól úrskurður í sér lækkun á launum viðkomandi og þá hve mikla í krónum og prósentum talið?
    Úrskurðurinn fól í sér lækkun launa sem nam 460.944 kr. (launin fóru úr 1.394.944 kr. í 934.000 kr.), eða um þriðjung.

     3.      Aflaði viðkomandi stjórn lögfræðiálits um framkvæmd úrskurðarins og ef svo var, hver var niðurstaða álitsins?
    Niðurstaða álitsins var tillaga til stjórnar um að launalið ráðningarsamnings yrði sagt upp og tæki uppsögnin gildi sama dag og úrskurður kjararáðs var dagsettur.

     4.      Fór viðkomandi stjórn eftir niðurstöðu álitsins? Ef ekki, hvaða ástæður lágu að baki þeirri afgreiðslu?
    Stjórnin fór eftir niðurstöðu álitsins.

     5.      Kom úrskurður kjararáðs til framkvæmda strax gagnvart viðkomandi í framhaldi af efnislegri umfjöllun stjórnar um hvernig hann skyldi framkvæmdur eða var framkvæmd frestað, t.d. vegna uppsagnarfrests eða annarra sjónarmiða, og þá í hvað langan tíma?
    Úrskurðurinn kom strax til framkvæmda. Framkvæmd lækkunar var frestað í níu mánuði, sem var uppsagnarfrestur þáverandi forstjóra, enda var það skýr ráðlegging lögmanna að haga málum með slíkum hætti.

     6.      Ef framkvæmd var ekki frestað, kom til leiðréttinga á framkvæmdinni síðar, t.d. vegna uppsagnarfrests eða annarra sjónarmiða?
    Ekki kom til annarra leiðréttinga.

     7.      Ef framkvæmd var frestað eða framkvæmd leiðrétt eftir á, hvað munar miklu á heildarlaunagreiðslum á frestunartímabili miðað við að úrskurður hefði komið til framkvæmda strax?
    Á ekki við.


     8.      Var viðkomandi bættur sá munur að hluta eða öllu leyti sem var á upphaflegum kjörum og þeim sem kjararáð ákvarðaði með úrskurði sínum, t.d. með eingreiðslu, hlunnindum, launuðum aukastörfum eða með öðrum hætti? Hver var sú fjárhæð eða hlunnindi?
    Ekki var um slíkar bætur að ræða.