Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 596. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1308 — 596. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margir aðilar hafa beðið um að fá afhent eintak af meðmælendalistum frá framboðum vegna a) sveitarstjórnarkosninga árið 2010, b) forsetakosninga 2012, c) alþingiskosninga 2013? Í hversu mörgum tilvikum var orðið við beiðni þeirra? Óskað er sundurliðunar eftir því hvaða stjórnvald tók ákvörðun um að afhenda gögnin, ári afhendingar og framboðum.
Um framkvæmd hverra framangreindra kosninga gilda sérlög, þ.e. lög nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórna, lög nr. 36/1945, um framboð og kjör forseta Íslands, og lög nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, með síðari breytingum. Er í hverjum þeirra kveðið á um móttöku og meðferð meðmælendalista sem hér segir:
a. Samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna eru það yfirkjörstjórnir sveitarfélaga sem taka við meðmælendalistum, hver í sínu sveitarfélagi.
b. Samkvæmt 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands tekur innanríkisráðuneytið við meðmælendalistum en afgreiðir þá síðan áfram til Hæstaréttar.
c. Samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga um kosningar til Alþingis taka yfirkjörstjórnir við meðmælendalistum, hver í sínu kjördæmi.
Fyrir liggur að hvorki innanríkisráðuneytinu né Hæstarétti bárust beiðnir um afhendingu meðmælendalista vegna forsetakosninganna 2012. Jafnframt liggur fyrir að yfirkjörstjórnum kjördæmanna bárust engar slíkar beiðnir vegna alþingiskosninganna 2013. Þá hafa ráðuneytinu ekki borist tilkynningar um það hvort yfirkjörstjórnum í einhverjum þeirra sveitarfélaga, þar sem boðnir voru fram framboðslistar við sveitarstjórnarkosningarnar 2010, hafi borist slíkar beiðnir.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1308 — 596. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni
um afhendingu meðmælendalista frá framboðum.