Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 591. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1317 — 591. mál.
Óskað var eftir svörum frá Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP banka, Kreditkortum, Gjaldheimtunni, Borgun, Momentum, Motus og Valitor við fyrirspurninni. Viðbrögð bárust ekki frá Gjaldheimtunni, Momentum eða Valitor og Arion banki sagðist ekki telja rétt að svara vegna þess að Alþingi gegni ekki eftirlitshlutverki gagnvart bankanum. Eftirfarandi svör byggjast á upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu, auk upplýsinga frá þeim fjármálafyrirtækjum sem svöruðu.
1. Halda fjármálastofnanir utan um skráningar á fjárhagslegri stöðu og viðskiptasögu einstaklinga? Ef svo er, hvaða reglur gilda um slíkt?
Mismunandi er eftir tegund fjármálastofnunar, t.d. hvort um er að ræða viðskiptabanka, vátryggingafélag, verðbréfafyrirtæki eða annað, hversu ítarlegum upplýsingum um fjárhagslega stöðu og viðskiptasögu einstaklinga er haldið til haga. Almennt má telja að allar fjármálastofnanir haldi utan um skráningar á viðskiptasögu viðskiptavina sinna og viðskiptabankar búi yfir upplýsingum um fjárhagslega stöðu einstakra viðskiptavina. Svör Landsbankans, Íslandsbanka og MP banka eru á þann veg. Um meðferð slíkra upplýsinga gilda lög nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, en Persónuvernd fer með eftirlit með framkvæmd laganna og reglna setta á grundvelli þeirra.
2. Hvernig eru einstaklingar skráðir hjá fjármálastofnunum:
a. á meðan gildur greiðsluaðlögunarsamningur er í skilum,
b. eftir að greiðsluaðlögunarsamningi lýkur og er uppgreiddur samkvæmt samningsskilmálum,
c. eftir að tveggja ára fyrningarfresti lýkur frá skiptalokum einstaklings,
d. og, ef við á, hvenær er slíkri skráningu aflétt og henni eytt úr skrám?
Svör viðskiptabankanna voru á þá leið að í viðskiptakerfum þeirra séu viðskiptamenn merktir með auðkenni meðan á greiðsluaðlögun stendur. Að henni lokinni séu afskrifaðar kröfur vistaðar varanlega í kerfum bankanna. Í tilviki Íslandsbanka er skráningu eytt eftir sjö ár.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki athugað sérstaklega skráningu persónuupplýsinga á mismunandi stigum greiðsluaðlögunar hjá lánastofnunum en spurningarnar eiga ekki við um aðrar fjármálastofnanir. Vakin er athygli á því að embætti umboðsmanns skuldara hefur umsjón með greiðsluaðlögun en Persónuvernd hefur eftirlit með skráningu persónuupplýsinga.
3. Er haldið sérstaklega utan um afskrifaðar kröfur vegna einstaklinga og hversu lengi varir slík skráning í kerfum fjármálastofnana?
4. Hvenær eru fyrndar kröfur felldar brott úr kerfum fjármálastofnana?
Samkvæmt svörum viðskiptabankanna virðist almenn regla þeirra vera að fella kröfu úr kerfi bankans þegar hún hefur verið afskrifuð og innheimtu lýkur án árangurs.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki gert sértæka athugun á því hversu lengi er haldið utan um afskrifaðar eða fyrndar kröfur í kerfum fjármálastofnana en Fjármálaeftirlitinu hafa í einhverjum tilvikum borist fyrirspurnir eða kvartanir vegna þessa og hafa erindin verið framsend til Persónuverndar sem hefur eftirlit með vinnslu og meðferð persónuupplýsinga.
5. Eru kröfur fjármálastofnana framseldar til innheimtufyrirtækja? Ef svo er, hvenær er slíkum skráningum eytt úr kerfum?
Íslandsbanki og MP banki hafa ekki framselt kröfur til innheimtufyrirtækja. Landsbankinn hefur framselt innheimtufyrirtækjum kröfur til innheimtu fyrir hönd bankans.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki gert heildarúttekt á meðferð krafna hjá fjármálastofnunum á fjármálamarkaði en ljóst er að slík meðferð kann að vera mismunandi eftir tegund fjármálastofnunar, t.d. hvort um er að ræða viðskiptabanka, vátryggingafélag eða verðbréfafyrirtæki. Vakin er athygli á því að skv. 2. mgr. 3. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 er viðskiptabönkum, sparisjóðum, öðrum lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum heimilt að stunda innheimtu fyrir aðra án innheimtuleyfis. Áréttað er að um meðferð persónuupplýsinga gilda lög nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, en Persónuvernd fer með eftirlit með framkvæmd laganna og reglna setta á grundvelli þeirra.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1317 — 591. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Elsu Láru Arnardóttur
um skráningu viðskiptasögu hjá fjármálastofnunum.