Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 26  —  26. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs.

Flm.: Katrín Jakobsdóttir, Bjarkey Gunnarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Þóra Árnadóttir,
Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónasson.


    Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að vinna að því, í samvinnu við skipulagsyfirvöld og hugsanlega rétthafa, að stofna Hofsjökulsþjóðgarð sem hafi innan sinna marka Hofsjökul og aðliggjandi svæði. Við afmörkun þjóðgarðsins verði höfð hliðsjón af mati á því verndargildi náttúrufars og menningarminja sem liggur til grundvallar þingsályktun nr. 13/141, um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem var samþykkt á Alþingi 14. janúar 2013.
    Ráðherra kynni Alþingi stöðu málsins fyrir lok vorþings 2015 og stefnt verði að formlegri stofnun þjóðgarðsins árið 2016.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs var flutt á 140. löggjafarþingi (106. mál) og á 141. löggjafarþingi (522. mál), í bæði skiptin af Guðfríði Lilju Grétarsdóttur með atbeina nokkurra annarra þingmanna. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, með Katrínu Jakobsdóttir sem fyrsta flutningsmann, bar málið fram á 143. löggjafarþingi (169. mál) með þeirri breytingu að við afmörkun væntanlegs þjóðgarðs yrði tekið mið af þeim forsendum fyrir vernd náttúrufars og menningarminja sem liggja til grundvallar þingsályktun um vernd og orkunýtingu landsvæða – rammaáætlun – sem samþykkt var á Alþingi hinn 14. janúar 2013. Var breytingin gerð í ljósi þess að sömu sjónarmið gilda þegar dregin eru mörk verndunar og nýtingar landsvæða og þegar dregin eru þjóðgarðsmörk. Í báðum tilvikum eru þau landsvæði afmörkuð sem skulu njóta friðunar og varðveitast til framtíðar með öllum eiginleikum sínum. Afmörkuð eru þau landsvæði sem enginn aðili hefur vald til að spilla eða leggja undir starfsemi sína en þegar þjóðgarður á í hlut skal jafnframt tryggja aðgang almennings að svæðinu og gefa fólki kost á að njóta þar náttúru og sögu með þeim hætti að ekki valdi spjöllum.
    Fyrrnefndri þingsályktunartillögu Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur fylgdi svohljóðandi greinargerð:
    „Þeirri hugmynd hefur oft verið hreyft á síðari árum að vernda beri náttúru miðhálendis Íslands með því að lýsa það þjóðgarð í heild sinni eða að stórum hluta. Um miðhálendið fór fram mikil umræða á 10. áratug liðinnar aldar og tengdist hún m.a. vinnu að skipulagi á svæðinu. Á árinu 1998 flutti Hjörleifur Guttormsson þingsályktunartillögu sem kvað á um stofnun fjögurra þjóðgarða á miðhálendinu sem hefðu innan sinna marka helstu jökla miðhálendisins og aðliggjandi landsvæði, þ.e. Hofsjökuls-, Langjökuls-, Mýrdalsjökuls- og Vatnajökulsþjóðgarða (þskj. 727, 122. löggjafarþing). Tillagan var endurflutt á 123. löggjafarþingi (þskj. 16) og leiddi til ályktunar Alþingis 10. mars 1999 um Vatnajökulsþjóðgarð. Með henni var umhverfisráðherra falið að kanna möguleika á stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs (þskj. 1144). Eftir umfangsmikla og vandaða vinnu tóku gildi 1. maí 2007 lög nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og var þjóðgarðurinn stofnaður formlega með reglugerð vorið 2008.
    Nú er brýnt að halda verkinu áfram og sjá verða að veruleika Hofsjökulsþjóðgarð sem hefði innan sinna marka Hofsjökul og aðliggjandi landsvæði sem sum hver eru þegar friðlýst eða á náttúruminjaskrá. Þar ber að nefna Þjórsárver, Kerlingarfjöll (sjá náttúruminjaskrá, 732), Guðlaugstungur (friðland samkvæmt auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 1150/2005) og Orravatnsrústir (sjá náttúruminjaskrá nr. 413) en við bætist önnur aðliggjandi svæði eftir því sem samkomulag tekst um þannig að úr verði sem stærst samfelld náttúrufarsleg heild. Í því sambandi verði m.a. horft til Austari-Jökulsár og Vestari-Jökulsár sem hluta af þjóðgarðinum. Við vinnu að málinu verði ekki síst tekið mið af þeim svæðum umhverfis jökulinn sem þegar eru ákvörðuð sem þjóðlenda (sjá fylgiskjal).
    Hofsjökull er þriðji stærsti jökull landsins, tæpir 1.000 km 2 að flatarmáli, og í honum er risastór ísfyllt askja. Tillagan felur í sér að Hofsjökull myndi eins konar kjarna væntanlegs þjóðgarðs sem tengist náttúruverndarsvæðum og öðrum verndarsvæðum sem yrðu hluti hans. Brýnt er að fólk á þeim svæðum sem liggja að þessum hluta miðhálendisins líti á stofnun þjóðgarðsins sem jákvæða aðgerð og komi að undirbúningi hennar og eigi hlutdeild í ferlinu, en að öðru leyti er hér um mál að ræða sem snertir þjóðina í heild. Því ber að leggja áherslu á nána samvinnu stjórnvalda við heimafólk, hlutaðeigandi skipulagsyfirvöld og hugsanlega rétthafa við undirbúning málsins, þar með talin frjáls félagasamtök á sviði náttúruverndar og útivistar. Einnig er nauðsynlegt að tryggja samfellu og samvinnu um stjórnun og eftirlit með þjóðgarðinum sem hluta af náttúruverndarsvæðum miðhálendisins. Við skilgreiningu verndarákvæða ber m.a. að taka mið af viðmiðum Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN) um þjóðgarða og önnur verndarsvæði, líkt og fordæmi eru fyrir í Vatnajökulsþjóðgarði.
    Miðhálendi Íslands er einstakt með jöklum sínum og stórum svæðum sem þeir hafa haft á mótandi áhrif, svo og jökulánum sem frá þeim renna. Samspil jarðelds og íss eru stórbrotin og uppspretta gífurlegra náttúruhamfara sem skollið geta á þá minnst varir. Þessar fágætu aðstæður auka mjög á aðdráttarafl landsins og miðhálendisins sérstaklega. Við þetta bætast auðnir og ósnortin víðerni sem flest er að finna í grennd jöklanna. Þessa gersemi ber Íslendingum að varðveita og vernda bæði sjálfra sín vegna sem og í alþjóðaþágu. Það verður best gert með hyggilegu verndarskipulagi.
    Með tilkomu Hofsjökulsþjóðgarðs væri tekið mikilvægt skref í náttúruvernd á Íslandi. Hofsjökli og umhverfi hans væri lyft á þann stall sem þau verðskulda og aðdráttarafl og gildi óbyggðanna yrði tryggt. Fyrir þjóð sem vill vera framarlega í umhverfismálum samhliða því að byggja upp sjálfbæra ferðaþjónustu til framtíðar er mikið í húfi að vernda náttúru landsins, ekki síst jarðsögulegar minjar, víðerni og jökla hálendisins. Það er ekki eftir neinu að bíða í þessum efnum enda senn liðinn hálfur annar áratugur frá því að hugmyndin að stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs kom fyrst fram.
    Í þessu samhengi skal hér að lokum bent á að skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir náttúruverndarsamtök í október 2011 leiddi í ljós að víðtækur stuðningur er við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. 56% aðspurðra voru hlynnt slíkum þjóðgarði, einungis 17,8% andvíg og 26,2% tóku ekki afstöðu. Samkvæmt skoðanakönnuninni átti hugmyndin vísan stuðning meðal kjósenda allra stjórnmálaflokka, meðal allra aldurshópa og um land allt. Aðrar kannanir sem gerðar hafa verið á síðari missirum og lúta að náttúruvernd og umhverfismálum hafa sömuleiðis sýnt stuðning kjósenda allra flokka við auknar áherslu á náttúruvernd.“

Fylgiskjal.


Óbyggðanefnd. Úrskurðarkort d fyrir mál nr. 5/2008, Húnavatnshreppur austan Blöndu og Skagafjörður vestan Vestari-Jökulsár ásamt Hofsjökli.

( obyggdanefnd.is/skjol/5_2008dHunavhrSkag.pdf)


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.