Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 59 — 59. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um sumardvalarstaði fatlaðra.
Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.
1. Hversu margir sumardvalarstaðir fyrir fullorðið fatlað fólk voru starfræktir hérlendis sumarið 2014?
2. Hversu margir fullorðnir fatlaðir einstaklingar nýttu sér þjónustu þessara staða?
3. Er rekstur sumardvalarstaða fyrir fullorðið fatlað fólk leyfisskyld starfsemi og ef svo er, hvaða skilyrði eru sett fyrir starfseminni?
4. Hvaða skilyrði eiga við um starfsfólk slíkra sumardvalarstaða?
5. Eru uppi áform um að setja frekari skilyrði fyrir starfrækslu slíkra staða eða breyta skilmálum um starfsemi þeirra og þá með hvaða hætti?
Skriflegt svar óskast.