Ferill 60. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 60 — 60. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um gagnasafn RÚV.
Frá Birgittu Jónsdóttur.
1. Hvernig er varðveislu hljóð- og myndefnis RÚV háttað?
2. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við fregnum af því að hljóð- og myndbandasafn RÚV liggi undir skemmdum?
3. Telur ráðherra að hljóð- og myndefni RÚV eigi að vera aðgengilegt almenningi? Ef svo er, með hvaða hætti telur ráðherra að aðgengið eigi að vera?