Ferill 97. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 97 — 97. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um launakjör starfsmanna Seðlabankans.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hver voru meðalheildarlaun starfsmanna Seðlabanka Íslands á árinu 2013?
2. Hvernig hafa framangreind laun þróast frá árinu 2008 í samanburði við laun félaga í ASÍ, BSRB og BHM á sama tímabili?
3. Hver voru meðalheildarlaun næstráðenda og sviðsstjóra Seðlabanka Íslands á árinu 2013?
4. Hver ákvarðar laun næstráðenda og sviðsstjóra Seðlabanka Íslands? Er litið til annarra stétta þegar þau launakjör eru ákvörðuð og ef svo er, hvaða stétta?
Skriflegt svar óskast.