Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 113 — 111. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar
fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta.
Frá Valgerði Bjarnadóttur.
1. Hve margir höfðu 31. ágúst sl. sótt um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta samkvæmt lögum nr. 9/2014?
2. Hve margar umsóknir höfðu þá verið afgreiddar, hve margar verið samþykktar og hve mörgum verið hafnað?
3. Hvernig skiptast ástæður þess að umsóknum var hafnað, sbr. a–f-lið 2. mgr. 3. gr. laganna?
4. Hvers vegna hefur reglugerð um framkvæmd laganna skv. 8. gr. þeirra ekki verið sett?
Skriflegt svar óskast.