Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 114 — 112. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um veiðigjöld.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hver er heildarfjárhæð innheimtra veiðigjalda, almenns veiðigjalds annars vegar og sérstaks veiðigjalds hins vegar, samkvæmt lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012, fiskveiðiárið 2013/2014? Svar óskast sundurliðað eftir heimilisfesti ætlaðra greiðenda, þ.e. eftir sveitarfélögum annars vegar og kjördæmum hins vegar.
2. Hver er heildarfjárhæð lækkana vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögunum fiskveiðiárið 2013/2014? Svar óskast sundurliðað eftir heimilisfesti gjaldenda, þ.e. eftir sveitarfélögum annars vegar og kjördæmum hins vegar.
3. Er tryggt að um kaup á íslenskum aflahlutdeildum hafi verið að ræða, eða fer fram könnun á að svo sé, þegar sótt er um lækkun veiðigjalds samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögunum?
Skriflegt svar óskast.