Ferill 130. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 132 — 130. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um gjafir til ríkisstofnana.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Hafa ríkisstofnanir fullan ráðstöfunarrétt yfir gjöfum sem til þeirra renna? Ef svo er, á það jafnt við um:
a. tækjagjafir, svo sem til skóla eða heilbrigðisstofnana,
b. peningagjafir, svo sem frá einstaklingum og fyrirtækjum eða í kjölfar safnana,
c. fasteignir, svo sem hús eða jarðir?
2. Er ríkisstofnunum heimilt að taka við gjöfum sem fylgja kvaðir frá gefanda?
3. Er eitthvert eftirlit haft með meðferð og ráðstöfun gjafa?
4. Bera ríkisstofnanir kostnað af gjöfum sem þær taka við, svo sem fasteignaskatt og viðhaldskostnað?
5. Hafa ríkisstofnanir heimild til að ráðstafa arði af gjöfum, svo sem hlunnindum og leigutekjum?
6. Hafa stofnanir heimild til að selja gjafir, svo sem listaverk, tæki eða fasteignir? Ef svo er, hvaða reglur gilda um slíka sölu?
7. Hafa ríkisstofnanir ráðstöfunarrétt yfir sölutekjum af gjöfum? Ef svo er, gilda sömu reglur um ráðstöfun söluhagnaðar af gjöfum og ráðstöfun peningagjafa?
8. Hafa gjafir áhrif á framlög til ríkisstofnana í fjárlögum?
Skriflegt svar óskast.