Ferill 135. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 137  —  135. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um framlög ríkisaðila til félagasamtaka.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hvaða ríkisaðilar sem heyra undir ráðherra eru aðilar að félagasamtökum og að hversu miklum hluta? Hversu mikið hafa ríkisaðilarnir greitt í þau félagasamtök á árunum 2007–2013 í formi félagsgjalda eða með annars konar framlagi? Svar óskast sundurliðað eftir ríkisaðila, félagasamtökum og almanaksári.
     2.      Hvers konar aðhaldi og eftirliti hefur hver og einn ríkisaðili beitt til að tryggja að framlagi hans sé varið í samræmi við tilgang félagasamtakanna á árunum 2007–2013?
     3.      Hver félagasamtakanna hafa ákvæði í lögum sínum um að reikningar þeirra séu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, skoðaðir af félagslegum skoðunarmönnum eða með öðrum hætti? Eru einhver þeirra með engin slík ákvæði?


Skriflegt svar óskast.