Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 146  —  144. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um þjónustu fyrir fólk með fíknivanda.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvaða þjónusta er í boði fyrir fólk með fíknivanda og hverjir veita hana?
     2.      Hversu miklar fjárveitingar til þjónustu fyrir fólk með fíknivanda eru í fjárlögum fyrir árið 2014?
     3.      Hvernig er eftirliti með nýtingu fjármuna og faglegri þjónustu háttað?


Skriflegt svar óskast.