Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 149  —  147. mál.




Fyrirspurn



til umhverfis- og auðlindaráðherra um notkun plöntu-, sveppa- og skordýraeiturs.

Frá Halldóru Mogensen.


     1.      Hvernig er eftirliti með skráningu og notkun plöntu-, sveppa- og skordýraeiturs háttað hér á landi?
     2.      Hvaða upplýsingar liggja fyrir opinberlega um notkun slíkra efna hérlendis, þ.m.t. um tegundir, magn og dreifingu?


Skriflegt svar óskast.