Ferill 149. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 151 — 149. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sjúkraflug.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
1. Hversu margar sjúkraflugsferðir fer Landhelgisgæslan á ári?
2. Hversu margar sjúkraflugsferðir fer Mýflug á ári?
3. Hversu margar sjúkraflugsferðir fer sjúkraflugvél Isavia á ári?
4. Hvað kostar samningurinn við Mýflug á ári?
5. Hvað kostar rekstur flugdeildar Landhelgisgæslunnar á ári?
6. Hefur ráðherra látið gera hagkvæmnisathugun samkvæmt áliti Ríkisendurskoðunar á því hvort hagkvæmast sé fyrir ríkissjóð að Landhelgisgæslan annist allt sjúkraflug?
Skriflegt svar óskast.