Ferill 177. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 186  —  177. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um sjóði í vörslu Háskóla Íslands.

Frá Vilhjálmi Bjarnasyni.


     1.      Hver var raunávöxtun 25 stærstu sjóða í vörslu Háskóla Íslands árið 2013 miðað við neysluverðsvísitölu, reiknað eins og hjá lífeyrissjóðum, í prósentum og krónum?
     2.      Hver var fjáreignatekjuskattur hvers sjóðs í krónum?
     3.      Hverjar voru styrkveitingar hvers sjóðs í krónum?
     4.      Hverjar voru aðrar tekjur hvers sjóðs?


Skriflegt svar óskast.