Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 212  —  191. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um ráðningar starfsmanna fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Frá Birgi Ármannssyni.


    Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, voru ráðnir til starfa í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, eða þeim ráðuneytum sem áður fóru með verkefni þess, frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir voru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.


Skriflegt svar óskast.