Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 216  —  195. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um ráðningar starfsmanna mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Frá Birgi Ármannssyni.


    Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, voru ráðnir til starfa í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (áður menntamálaráðuneytinu) frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir voru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.


Skriflegt svar óskast.