Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 223 — 45. mál.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur
um tekjur af sölu hreindýraveiðileyfa og framlög til hreindýrarannsókna.
1. Hverjar voru heildartekjur af sölu hreindýraveiðileyfa og hreindýraafurða á árinu 2013?
Heildartekjur árið 2013 af sölu hreindýraveiðileyfa voru 133.069.000 kr. ásamt staðfestingargjaldi þegar veiðileyfi er ekki greitt að fullu. Tekjur vegna skila á leyfum, m.a. vegna þess að veiðimenn hafi ekki staðist skotpróf, hækkuðu umtalsvert á milli áranna 2012 og 2013. Auk þess sem færst hefur í aukana að veiðimenn skili leyfum. Óvissa er um hvort þetta er tímabundið ástand vegna breyttra reglna. Auk þess voru vaxtatekjur 2.639.000 kr. Engar tekjur voru af sölu hreindýraafurða árið 2013 þar sem ekki var verkunarstöð með starfsleyfi frá Matvælastofnun.
2. Hvernig skiptust tekjurnar milli Umhverfisstofnunar, Náttúrustofu Austurlands og landeigenda/ábúenda?
Heildartekjur af sölu hreindýraveiðileyfa, eftirstöðvar endurgreiðslu leyfa og vaxtatekjur skiptust þannig: Umhverfisstofnun 20.351.000 kr., Náttúrustofa Austurlands 8.514.000 kr. og landeigendur/ábúendur 106.842.000 kr.
3. Hver var á árinu 2013 annars vegar kostnaður Umhverfisstofnunar við stjórn og eftirlit með hreindýraveiðum og hins vegar kostnaður Náttúrustofu Austurlands við vöktun og rannsóknir á hreindýrastofninum?
Kostnaður Umhverfisstofnunar við stjórn og eftirlit með hreindýraveiðum árið 2013 var 19.199.000 kr. Samkvæmt ársreikningi Náttúrustofu Austurlands fyrir rekstrarárið 2013 nam kostnaður við vöktun og rannsóknir á hreindýrum 19.804.961 kr.
4. Hversu margir landeigendur eða umráðamenn lands fengu greiddan arð, hver var meðaltalsupphæð arðgreiðslu, hæsta upphæð og lægsta upphæð?
Viðtakendur arðs voru 962, meðaltalsupphæð var 111.000 kr., hæsta greiðsla 1.223.340 kr. og lægsta greiðsla 82 kr. Þess ber að geta að í þessari tölu getur sami viðtakandi verið talinn oftar en einu sinni ef viðkomandi fær greiddan arð af fleiri en einni jörð og eins getur arður af einni landareign skipst milli margra aðila.
5. Hvernig skiptist arður sem greiddur er til landeigenda eða umráðamanna lands milli einstaklinga, lögaðila, sveitarfélaga og ríkis?
Einstaklingar fengu greiddar 79.966.000 kr. og lögaðilar, sveitarfélög og ríki fengu samtals 26.876.000 kr. Ekki er unnt að fá úr gagnagrunninum upplýsingar um hvaða lögaðilar eru í eigu sveitarfélaga eða ríkis.
6. Hefur öðru fé en tekjum af leyfum til hreindýraveiða verið varið til rannsókna á hreindýrastofninum á síðustu fimm árum? Ef svo er, hvaðan hefur það fé komið?
Á síðastliðnum fimm árum námu heildartekjur vegna vöktunar og rannsókna á hreindýrum 86,5 millj. kr. Þar af námu aðrar tekjur en af sölu hreindýraveiðileyfa 57,9 millj. kr. Upplýsingar um hvaðan þær komu má sjá í eftirfarandi töflu. Á sama tímabili nam heildarkostnaður vegna vöktunar og rannsókna á hreindýrum 99,3 millj. kr. Uppsafnaður halli nemur því 12,8 millj. kr. Hann hefur verið fjármagnaður með öðru rekstrarfé Náttúrustofu Austurlands.
Tekjur Náttúrustofu Austurlands vegna vöktunar og rannsókna á hreindýrum 2009–2013.
| Aðrar tekjur | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | Samtals |
| Fjárlaganefnd Alþingis | 6.700.000 | 6.400.000 | 6.400.000 | 19.500.000 | ||
| Landsvirkjun | 12.085.479 | 7.665.000 | 6.600.000 | 5.136.259 | 4.918.737 | 36.405.475 |
| Veiðikortasjóður | 733.333 | 366.667 | 1.100.000 | |||
| NEED | 524.339 | 524.339 | ||||
| Náttúruverndarsjóður Pálma Jónssonar | 400.000 | 400.000 | ||||
| Samtals aðrar tekjur | 18.785.479 | 14.589.339 | 14.133.333 | 5.502.926 | 4.918.737 | 57.929.814 |
| Tekjur af sölu veiðileyfa | 3.957.000 | 4.301.500 | 5.505.500 | 6.464.500 | 8.337.000 | 28.565.500 |
| Samtals tekjur til rannsókna á hreindýrum | 22.742.479 | 18.890.839 | 19.638.833 | 11.967.426 | 13.255.737 | 86.495.314 |
7. Hver var kostnaður ríkissjóðs við rekstur hreindýraráðs á árinu 2013?
Kostnaður ríkissjóðs við rekstur hreindýraráðs árið 2013 var enginn en Umhverfisstofnun hefur greitt hádegisverð fyrir aðila á samráðsfundi hreindýraráðs, Náttúrustofu Austurlands og Umhverfisstofnunar sem haldinn er í nóvember ár hvert.