Ferill 51. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 224  —  51. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um friðun votlendis.


     1.      Er til forgangsskrá yfir votlendi sem mikilvægast er að friða með tilliti til verndar líffræðilegs fjölbreytileika, búsvæða fugla, annarra dýra eða plantna?
    Í samræmi við ákvæði laga um náttúruvernd hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið í tvígang lagt fram tillögu um náttúruverndaráætlun sem Alþingi hefur samþykkt. Fyrri áætlunin gilti fyrir tímabilið 2004–2008 og sú síðari fyrir árin 2009–2013. Seinni áætlunin inniheldur tillögur um friðlýsingu tólf nýrra svæða auk fjölda tegunda háplantna, mosa, fléttna og þriggja tegunda hryggleysingja sem eru í hættu og eru taldar þarfnast verndar. Auk þess eru á seinni áætluninni tíu svæði sem ekki náðist að friðlýsa á gildistíma fyrri áætlunarinnar. Á náttúruverndaráætlun 2009–2013 eru sex umfangsmikil votlendissvæði. Í starfi Náttúrufræðistofnunar Íslands að verkefninu Natura Ísland sem áætlað er að ljúki árið 2016 mun verða dregið fram hvaða votlendissvæði skipta mestu máli fyrir varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni og þjónustu vistkerfa til þess að setja upp forgangsröðun fyrir friðlýsingar.

     2.      Ef slík skrá er til, er fyrirhugað að gera framkvæmdaáætlun um slíka friðun?
    Náttúruverndaráætlun gegnir hlutverki framkvæmdaáætlunar. Tillaga til þingsályktunar um framlengingu náttúruverndaráætlunar sem gilti út árið 2013 er á þingmálaskrá og verður lögð fram á yfirstandandi þingi.

     3.      Hver er, gróflega áætlað, kostnaður við að friða þessi votlendissvæði?

    Varðandi kostnað við friðlýsingu votlendissvæða, sem og annarra landsvæða, er takmarkað hægt að segja annað en að hann sé mismikill eftir eðli og umfangi svæðanna. Miðað við kostnaðaráætlun fyrir náttúruverndaráætlun 2009–2013, sbr. meðfylgjandi töflu, þá var kostnaður við undirbúning og samninga um friðlýsingu um 2,5–3 millj. kr. á svæði miðað við verðlag ársins 2009. Síðan bætist við ýmis kostnaður við merkingar og rekstur hvers svæðis sem er mismunandi eftir svæðum, eðli þeirra, staðsetningu og stærð.

Kostnaðarmat við framkvæmd náttúruverndaráætlunar 2009–2013.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.