Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 227  —  68. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um eftirlitsstjórnvöld/eftirlitsaðila.


     1.      Hvaða ríkisstofnanir, sem heyra undir ráðherra, gegna hlutverki eftirlitsstjórnvalda/ eftirlitsaðila? Svar óskast sundurliðað eftir málaflokkum og tegundum eftirlits.
    Eftirfarandi ríkisstofnanir sem heyra undir ráðherra gegna hlutverki eftirlitsstjórnvalda/ eftirlitsaðila:
     –      Geislavarnir ríkisins. Samkvæmt lögum nr. 44/2002, um geislavarnir, með síðari breytingum, hafa Geislavarnir ríkisins eftirlit með geislaálagi starfsmanna, skoðun á geislatækjum og geislavirkum efnum sem og búnaði og aðstöðu þar sem slík tæki og efni eru notuð.
     –      Embætti landlæknis. Samkvæmt lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, með síðari breytingum, hefur embættið eftirlit með heilbrigðisþjónustu, heilbrigðisstarfsmönnum og lyfjaávísunum.
     –      Lyfjastofnun. Samkvæmt lyfjalögum, nr. 93/1994, annast stofnunin eftirlit með framleiðslu, dreifingu, sölu og kynningu lyfja.

     2.      Telur ráðherra þörf á því að yfirfara athugunar- og rannsóknarheimildir með það fyrir augum að samræma og bæta efni þeirra? Ef svo er, hvaða atriði eða þætti þyrfti að samræma eða bæta?
    Framkvæmd eftirlits og eftirlitsheimildir undirstofnana koma reglulega til skoðunar í ráðuneytinu m.a. með það fyrir augum að samræma og bæta framkvæmdina. Við þá yfirferð sem þegar hefur farið fram hafa ekki komið fram annmarkar á rannsóknarheimildum sem leitt hafa til þess að gerðar hafi verið breytingar á framkvæmd eftirlits umræddra stofnana.

     3.      Telur ráðherra þörf á að samræma og bæta framkvæmd eftirlits af hálfu eftirlitsstjórnvalda/eftirlitsaðila betur en nú er? Ef svo er, hvaða atriði eða þætti þyrfti helst að samræma eða bæta?
    Eins og fram kemur í svari við 2. tölul. er framkvæmd eftirlits undirstofnana reglulega tekin til skoðunar í ráðuneytinu, ekki síst með tilliti til mögulegrar hagræðingar í rekstri með sameiningu stofnana. Í tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar frá 13. október 2013, um aukna framleiðni og skilvirkni í ríkisrekstri, er lögð áhersla á að markmið opinbers eftirlits séu skýr og mælanleg svo hægt sé að leggja mat á árangur eftirlitsins.
    Enn hefur ekki þótt vera tilefni til að gera breytingar á framkvæmd eftirlits af hálfu umræddra stofnana.

     4.      Hafa einhver mistök átt sér stað við framkvæmd eftirlitsstjórnvalda/eftirlitsaðila síðustu ár? Ef svo er, hvers konar mistök var þá um að ræða?
    Ráðuneytinu er ekki kunnugt um mistök í starfsemi eftirlitsstofnana sem heyra undir valdsvið ráðherra síðustu ár.