Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 230  —  204. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um hlutfall þinglýstra lána á íbúðarhúsnæði.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


    Hvert er hlutfall þinglýstra lána með veði í íbúðarhúsnæði frá a) Íbúðalánasjóði, b) öðrum kröfuhöfum á tímabilinu 2007–2014, annars vegar hvað varðar fjölda lána og hins vegar hvað varðar fjárhæðir? Svar óskast sundurliðað eftir árum og þinglýsingarumdæmum.


Skriflegt svar óskast.